20 október, 2006

Heimsóknir

Þó að við búum hér langt upp í sveit 540km frá Bangkok og
og ennþá lengra frá Íslandi,er það ekki svo að við fáum
eingar heimsóknir í sveitina.Frá því um páska hafa komið
í heimsókn alla leið frá Íslandi Sigurður Felsted Laxveiði Guru og
Tom kona hanns þau komu um páskana og voru hjá okkur
í nokkra daga en þau eiga snoturt hús hér í nærsta nágreni,
Udon Thani 120km eru þangað.
Siðan mæltum við okkur mót við Nang úr Asparfellinu
kona Guðmars hjá Reiknistofu Bankana.Þá vorum við hjónin
í strandferð á Jomtien Beach og kom hún til okkar á hótelið
í nokkra daga.Síðan héldum við að stað heim á leið með
viðkomu í Pak Chong þar eiga Nang og Guðmar hús nærstum tilbúið
flott hús á stórri lóð.þetta var í júní kringum þann 17.
Þá komu hingað Guðmundur Netto, Eid og María Rós dóttir
þeirra þau komu til Thailands í júlí og komu til okkar
þann 10.Þau voru nokkra daga, síðan héldum við í strandferð.
Núna eru hérna systir Noo hún Deng og Gunnar Freyr Kleppari
maður hennar. það má segja að þaug séu í brúðkaupsferð
með nýfæddan prins sem heitir Sigurður Rúnar.
Við þökkum öllum fyrir síðast og
verið ávallt velkomin aftur.

Posted by Picasa Myndir hér

2 ummæli:

Gunz sagði...

Þetta er einvala lið sem kemur hingað til Thai. Verst að þeir Guðmar & Guðmundur Netto halda með Liverpool og Arsenal. Svo er Gummi bara hálfur á myndinni. Sennilega hálfur eftir Chang eða Singha?

Gunz sagði...

Síðan eru auðvitað fleirri á leiðini?