13 október, 2006

Flóðin og Ronaldo


Við opnuðum Tölvubúðina aftur í morgun,það varð ekkert
úr þessu ósköpum sem var búið að tilkynna, um frekari
flóð sem betur fer.þeim er mislagðar hendur í þessum
málum eins og kollegum heim á Íslandi.

Af Ronaldo er það að frétta að við sendum hann í
heimavistarskóla til að nema fræðin því að hann á það
til að vera svolítið þver blessaður.Skólinn er í 80-90
km fjarlægð frá okkur og er herbækistöð sem þjálfaðir
eru hermenn Thailenska hersins það dugar ekkert minna.
Systir hanns hún Jenifer er alveg vængbrotin yfir þessu
borðar lítið og er enþá minni í sér.Hún á eflaust eftir
að heimta að fara í skóla eins og brói,sem stendur líka
til að gera en við erum ekkert að láta hana vita af því strax.

Engin ummæli: