27 febrúar, 2007

Skólagöngu lokið



Skólagöngu Ronaldo og Jennefer lauk 13.des 2006 vegna
lélegs aðbúnaðar.
Herbækistöðin Dan Sai var orðin vatnslaus svo þeir gátu ekki
þvegið hundunum.Þeir voru illa lyktandi og komnar pöddur
í feldinn á Jennefer sem reyndust vera blóðsugur sem þurfti að
plokka úr. Ég gæti trúað að á annað hundrað stykki
hafi verið í Jennfer en miklu minna í Ronaldo
Þá hafði Jennfer reynt að strjúka og rifið sig á gaddavír
og fengið djúpan skurð á lærið sem saumaður var í stöðini
(illa gert), einhver herlæknir sá um það.
Síðan opnaðist þessi skurður þegar heim var komið og ekki
hægt að sauma aftur sagði dýralæknir sem við fórum til.
þetta er allt komið í lag núna og þeir kunna það sem þeir
hafa lært.Er nokkuð hægt að fara fram á meira?
Síðasta æfingin hér að neðan.

Engin ummæli: