Það getur verið varasamt að treysta landanum um of.
þannig var að ég var ný kominn heim í sveitina,
frá Pattaya ásamt Stefáni Keflvíking og vinkonu
hanns. Við komum með flugi til Udon-Thani en
Noo kom þangað akandi til að sækja okkur.
Tilgangur ferðarinar var að fara til Laos og
endurnýja dvalarleyfi Stefáns.Við komum á föstudegi
og Noo fór með Stefán og Sigurð Fjelsted sem bættist
við til Laos á mánudegi.Ég varð eftir heima til að
passa uppá hunda og bú enda hafði ég ekki séð hundanna
lengi.Eftir hádegið fékk ég símhringju frá Jóhanni
nokkrum sem er að byggja sér glæsivillu á Pattaya
og vildi hann kaupa að mér tölvu af Acer 5583 gerð
en þær tölvur hafði ég verið að selja landanum og
var búinn að selja sex stykki stút fullar af alskonar
forritum.Jóhann hafði ég aðeins hitt einu sinni áður
en það var hjá Steina bílasala,þá var ég að afhenda
Steina tölvu sem hann keypti af mér. Mikill öðlings
maður Steini.
Vildi Jóhann þessi eins tölvu með karaoke kerfi ,með
45 þúsund lögum bæði Thai og erlendum eða (Enskum).
Sagði ég honum að ég þyrfti að panta tölvuna frá
Bangkok og fengi ég hana daginn eftir til mín og þá
gæti ég farið að setja inn öll forritin sem ég hef
láti fylgja með í kaupunum.Gæti ég síðan afhennt
honum tölvuna nærsta mánudag, Því að við værum á leiðini
til Pattaya á föstudag með við komu í Korat þar sem stoppuðum
í tvær nætur því við ætluðum að kaupa skó á Stefán,
(bestu skór austan alpafjalla).en það er önnur saga.
Þegar við komum til Pattaya eftir 750 km. akstur,
hringdi ég í Jóhann og sagði honum að við værum
kominn með tölvuna og hvenar hann vildi taka við henni.
Hann sagðist vera upptekinn þennan dag en bað mig
að hafa samband daginn eftir.Ég hringdi 3-4 sinnum
daginn eftir en engin svaraði.Á miðvikudag hringdi
og þá svaraði hann alveg út á þekju sagðist vera
í Bangkok á fundi og fór að spyrja hvernig
tölvan væri, hversu stór diskur og mynni og þar eftir
götunum.Ég var búinn að segja honum þetta allt áður
og sá í hvert stefndi þegar hann sagði að það lægi
ekkert á.Ég sagði honum að við færum heim aftur
eftir tvo daga og ég væri ekki að leika mér að
keyra 1300 km til verða hafður að bjána. Á hvaða lyfjum
eru svona menn?
Þannig að heim fórum við með tölvuna en erum á
góðri leið með að selja hana kennara hér í sveit.
Maður lærir samt eitthvað af þessu en samt er þetta fúlt.
25 febrúar, 2007
Alveg ferlega fúlt
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli